mér líst mjög vel á nýútkomna bók sem ég hef hér fyrir framan mig. mjá. læt hér vaða:

annars samdi ég ljóð um síðustu helgi
það er einhvernveginn svona

augu hennar svo lamandi
að ég get varla dansað við hana

vera í öðrum heimi
alltaf með sjálfum mér
fljúga um í mjúku rými
og ætlast til einskis af þér
þú prinsessa snemma morguns
ég í öllu hér
óteljandi dagar hafa farið
eins og ekkert sé lengur
þess virði að vera ég og þó og ég
tala í huganum sem er inni í mér
ánægður en engan veginn

sólarupprás í Reykjavík
köld er sólin

Jóhamar.(2007). Skáldið á daginn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal