hver þarfnast dagbókar og einkalífs þegar hún hefur blogg
já hver þarfnast líkama í þessari sömu aðstöðu
kommon kona khoodddu inn í mitt opinbera svefnherbergi
hér sit ég með hvíta tölvu og bláan dildó
dæmalaust eggjandi sambland
svefnherbergið mitt er núna þessa stundina í líkamaleysinu á segafredo
yfir kaffibolla og fokkasíu
í dag hefur verið sofið
þveginn þvottur
borðaður morgunmatur
hlustað á tónlist
sofið
þveginn þvottur
hlustað á tónlist
borðað
já hugsa sér

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal