ég dansa fyrir þig í rjóðri. fel mig við trjástofninn. tæmi mig af væntingum. rís að himni með sólarupprás. fell frá eik. stjörnum rignir. ég dansa fyrir þig í rjóðri.

þú sérð mig.
þú sérð mig ekki.
þú sérð mig.
þú sérð mig ekki.

ég loka augum. opna lófa.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal