Vá þetta er æðislegur dagur - dásamlegt að vakna við þessa blíðu birtu og helgarbjarma blu blu ble blí

En hér er blíður drykkur í tilefni dagsins. Fékk mér hann í morgunmat og hann virkar mildandi vel á skarnið:

1 banani
1 epli
ca. 1/4 ferskur ananas
soyamjólk og slatti af henni
kókosananassafi smá af honum
myntulauf - nokkur, þarf ekki mikið
sólbómafræ - ca. 1 msk möluð fræ (ég mala mín fræ í forláta kaffikvörn)
vanilludropa

Jamm og öllu blandað vel nokkra stund.
Mjög fínn og ferskur morgundrykkur en skottunum finnst hann skrítinn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal