af hverju er ég ekki sofandi?
því Jane Eyre hamurinn þuklaði sér í gegnum svitaholur
sem fæddi af sér hugsanir sem kirkjufaðirinn í fjöllunum þekkti forðum
þar var trúin fyrirferðarmikil og ástin eins og hlass á barkakýlinu
tunguhaftið titrandi þoldi ekki við og lokaði pírðum augunum endanlega

appelsín og læri af feitum sauð - var kyrjað í fjarska
appelsín og læri af feitum sauð

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal