ó ég vona að ég komist til manna komist til mótmæla
á morgun
á morgun
seinna
bráðum
já bráðum
elskan mín
þetta kemur allt
þú verður að berjast
áfram við innri og ytri bakteríur sem herja á
þig og hina
hausinn, blóðið, skinnið, siðferðið, ræturnar
á mennsku litlu tærnar þínar já
ég vona að ég komist til manna

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal