ég hef verið alveg óskaplega lasin ef það skyldi hafa farið fram hjá ykkur systur og bræður sem ratið til mín
EÐA ER ÉG KANNSKI ÖLLUM GLEYMD!!!!
baaaahhh
sjálfsvorkun mín hefur hreinlega öðlast vængi og náð nýjum hæðum í þessum veikindum
ég skrölti mér út í Melabúðina góðu og eins og hræddur rykspúandi rakki ráfaði ég um hillurnar og leið eins og ég hefði ekki farið út í kjörbúð í 3 ár - en þér að segja er það aðeins rúm vika síðan ég hætti mér fyrir alvöru út á meðal manna
núna skil ég af hverju jólasveinar eru svona undarlegir í háttum en ég náði þó ekki alveg þeirra töktum við kjötborðið
því auk aukinnar sjálfsvorkunar þá hefur paranojan vaxið mér um hrygg og hnakkafestu
en þetta hafðist þetta hafðist og heim er ég komin með maltflöskuna og flatkökurnar
heim í hlýjan hellinn minn með mallandi rótsterka kjötsúpuna frá því í gær

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal