mér líður eins og vínarbrauðslengju sem hefur fengið sólsting
veit ekki hvað hægt er að gera í slíku
steikja hakk kannski
eða sleppa því
og hafa tröllatrú á baðferð og guði
gæti sett plástur um hvern og einn fingur
saumað æðarnar betur saman
hlustað aftur á skúla
svo gæti ég sett í þvottavél
en efast þó stórlega um að vínarbrauðið taki stórkostlegum stakkaskiptum
rísi upp úr sæfaralegum svita og fari að trúa á faðmandi hendur upp úr jörðinni

"mig langar heim" kallar litla skottan

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal