höndin og hjartað skríða inn í vegginn fálma um saman tvær afturgöngur á leið aftur til þín aftur á hættulegar slóðir og öll málningin flagnar af við minnstu hugsun. þetta á að vera svona segir sölukonan. þetta er sko málning sem á að flagna af skilurðu. já það á að sjást að þetta sé gömul og notuð reynsla. gamall og notaður tími. og höndin og hjartað reyna að trúa því og halda áfram að ganga aftur. aftur og aftur á slóðir vímu vandalausra. á slóðir bergmála og fjallbrattra brúna. málning sem flagnar til sölu öl lu lu uu uuu...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal