hæææ elskan
nei hæææææ
hvasegirru
bara gott
er það
ég líka
ohh en gott
já svo gott
þú ert svo sæt
þú líka
ohh það er svo gott

þá hlýtur bómullinn að flæða úr eggjaskurninni hreinlega
já jájájá
alveg mússímússí
einmitt kisulóri kósímós
úlalaaaa

ég ætla heim úr vinnunni núna
það er fluga sem er límd við heilahornið, mitt á milli hafs og eyjaskeggs
hún suðar og syngur
grætur örlítið í gamla daga
en í nýju dögunum segir hún bara: hæææ elskan
frábært elskan
og allt það
alveg kreisí glöð
eilíen glöð
beckett þunglynd og allt

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal