og ég er hér enn að skrásetja vöku
stend með mælistikuna og nýt ekki kyrrðarinnar því ég hræðist daufan morgun þegar augun mín límast niður og sinnið æpir: meiri nótt meiri nótt
ég gæti hugsað mér að mæta ekki aftur til vinnu
ég gæti hugsað mér svo margt annað en að mæta aftur til vinnu
gæti hugsað mér að mæta til altaris
gæti hugsað mér að mæta á réttum tíma til mín og takast á við langanir og aðrar togstreitur
gæti hugsað mér að aftengja klukkuna á meðan

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal