ef ég verð skotin þá hleyp ég í burtu, horfi í hina áttina, læt mig hverfa ofan í hálsmálið

ég held ég sé skotin í sólinni því þessi sömu viðbrögð brjótast fram í mér þegar hún eltir mig uppi full af losta
þá fer um mig fiðringur og eitthvað appelsínugult streymir í hjartanu mínu sem veldur því að ég verð að forða mér inn í myrku holuna mína

svona getur ástin verið elskan mín

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal