með vorinu? hvað er það sem KEMUR með vorinu?

hmmmm
og víst er ég vorstelpa jú en hef þó á stundum fengið ofbirtu í augun og þurft að loka og leggja mig frá umheiminum
trúi samt að fælnin - sú sem kemur yfirleitt hvorki né fer með vorinu - að hún leggist í dvala - með vorinu

svo var það þetta með líkamann
skuldlausa líkamann - hann stjórnar öllu
öllu

það var líka spurning um sorgina í líkamanum
vorið í líkamanum
vorsorgina í líkamanum


og í öllu þessu færðist ég til í litrófinu
það er helst í fréttum

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal