krumminn veit það örugglega best að þessi vetur mun einn daginn taka enda. að svartnætti fæðir af sér ljós á endanum. hann stendur þetta af sér. sveimar um í eirðarleysi sínu leitandi að kroppi og tilvistarkrúnki til að næra tímann. krummi minn vokir yfir og saman fáum við okkur nýpressaðan ananassafa með engiferi. þvílíkt lostæti í drunganum.

Ummæli

krumma sagði…
úfff ljóta veðrið þarna á föstudaginn maður, aaarg ég man það framvegis að láta veðurfréttamenn og annan óþjóðalíð ekki halda mér frá minni einu sönnu ást, missjú kreisí sko, kreiiiisí, bara verð að fá þig

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal