ég á svo dásamlegar stelpur tvær stelpur sem eru mér allt já ég á allan heiminn
rölti portobello markaðinn í gær í fallegri birtunni og ögn kulda og núna
er ég svoldið lasin að lesa góða bók
las í flugvélinni og gleymdi stund og stað en er samt
svoldið svona slöpp öll í varaþurrkinum og hálsinum og hausnum og fótunum þreyttu
en það er allt í lagi
því bráðum koma jólin og bráðum fæ ég langt frí með stelpunum mínum og þá engin vinna bara frelsandi kyrrð

Ummæli

Bíbí West sagði…
æh! svo gott að þú ert komin heim til mín í myrkrið og jólaljósin og allt. Já helvíti fyndið að sakna þín svona mikið í heila fimm daga!
Fía Fender sagði…
já fyndið og fallegt elskan mín
eins gott að hafa hvor aðra í þessu vetrarríki

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal