núna langar mig mest í klaustur
ekki klaustur í sellófani nei
bara að fá að vera í klaustri að lesa og sofa og biðja
það meikar sens
hef lesið svoldið af bókum undanfarið en hef nokkrar ólesnar hjá mér
það er svo gott
kannski finn ég klaustrið mitt á snæfellsnesi
man alltaf selina og drauminn um hestana á snæfellsnesi
og þeir umkringdu húsið líkt og lorca ætlaði að sogast inn í mig
ég mæli með tveimur bókum núna: afleggjarinn og blysfarir. alveg afbragðs lesning báðar tvær.
konur eru mjög sterkar skáldskaparlega um þessar mundir.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal