vinna og veikindastand
og stóra stelpan mín að fara í svæfingu og aðgerð á morgun
æh mér finnst það svoldið erfitt en þetta gengur örugglega allt vel

við þula horfðum á nigellu ofurmömmu að útbúa jólamat og ég fékk svima og óreiðukast en sú stutta sagði að þetta væri mamma jólasveinanna og að hún héti sko ekki nigella heldur grýla og núna væri hún að fara að gefa þeim að borða

annars bara já veikindi og vinna aftur

svei

burt með þennan seiðing burt með alla sút já

komdu bara til mín ástin mín komdu bara ég er með gervisnjó í skál

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal