rúllandi sólir um langa spítalaganga langa langa ganga já
sumar sólir þær koma ekki upp í austri og enn síður kunna þær að planta aftur- endanum í vestur
nei þær þvælast bara um og lenda á endanum í ruslafötunni
lúra þar lengi lengi lengi
pseudo-sólir sem þykjast glóa í myrkum haug
þær kunna ekki alveg að rísa né hníga á tilætlaðan hátt né á tilskyldum tíma
fylgja ekki tímanum
kunna ekkert
annað en að þykjast vera sólir á röngum stað á röngum tíma

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal