já ég slysaðist af rælni í veikindamóki mínu inn á gamalt bloggerí hjá mér. annað hvort þá var ég svona skemmtileg einu sinni og er svona leiðinleg núna eða þá að ég hef mikið fyrir því í dag að fela blóðheita skrifásjónu mína. er það aldurinn eða bankahrun eða doðinn eða ástin sem fór í sjóinn. sjálf pissa ég bara í skóinn.

ég er veik í dag. sjúk og sorgmædd.
dreg úr mér garnir og þerra þær á snúru innan um hvítan þvott. gaman að kontröstum. hengi hrafnsvængi líka á snúrur. blóðuga og ormétna. þeir fá líka að vera innan um hvít lök. ekkert blóð lengur í hvítum lökum. ekkert blóð meira. burt með blóðið. komið með kampavínið. ég er óður til guðs og moldar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal