þetta er frá 10. júlí 2007 og það hittir svona líka vel í mark í dag 10. maí 2010. þessi morðóða skepna sem tíminn er. ég er hér enn. ég er hér núna. öll ég. fallega bólgin í mínu einka rænuleysi:

innra bærist sem betur fer alltaf þetta litla ljóð
langdreginn losti undir yfirmáta rólegu yfirborði
enn lengra er verið að rótarfylla og þar heyri ég í þunglamalegum borum
tærnar kippast til
titra og tæla sjálfan sig í hring

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal