Ein og sömu hjúskaparlögin fyrir alla í þessu guðsvolaða landi!

Það er óþolandi að sjálf þjóðkirkjan geti og vilji mismuna fólki svo skelfilega. Ég varð bara að setja inn myndskeið af honum Bjarna Karlssyni hér að neðan því hann er einn af þeim réttsýnu og góðu prestum innan þjóðkirkjunnar. Mér finnst hann ávallt tala af heilindum og frá hjarta sínu. Reyndar sagði ég mig úr þjóðkirkjunni fyrir rétt rúmu ári.

Kirkjan ætti að sameina fólk í kærleika en ekki mismuna og standa fyrir grófri aðskilnaðarstefnu.

Trú, von og kærleikur - það er leiðin að ljósinu.

Ummæli

krumma sagði…
þetta er óþolandi, bara algjörlega óþolandi

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal