já þessi tími og þessi tannhjól og líf mitt og líf þitt og uppblásnir vængir mínir loftlitlir í annars vængstífðum veruleika þessa mánudags. kaffið hjálpar mér að hlýna því mér er kalt. loppurnar krafla í moldina og leita að ryðguðum krónupening. fiskurinn upp. hjartað klæddist teinóttum jakkafötum í tilefni tímans. tældi mig niður þennan moldarstíg. niður í leit að fræjum fyrir framtíðina. það liggur svo ljómandi... syngur í hljóðhimnum hinum megin við lækinn. ljómandi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal