annsi er ég hrædd um að gjáin í höfðinu á mér sé að dýpka, breikka já jafnvel bólgna upp
að eitruð naðra hafi hreiðrað um sig í gjánni í höfðinu á mér og hún vinni nú hörðum hölum að því að gera mig sturlaða tveggja heima húsmóður á bókasafni sem týndi sér og sjálfinu í gjánni á milli veruleika og einhvers annars. það er einmitt þessi veruleiki sem er óraunsær og hættulega falskur. varist hann ég bið ykkur af mínu margsaxaða hjarta í krukku af formalíni - varist veruleika. blekkingin er byggð úr fínlegu efni sem tengir sig við flóð og skóga.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal