Gloria hosanna in excelsis


Ég er í alveg dásamlegu jólaskapi þessa dagana. Fór á jólatónleika Mótettukórs Hallgrímskirkju í gærkveldi og það var mjög falleg og góð stund:

Opin standa himins hlið
í helgum dýrðarljóma.
Loftin öll þau óma við,
þar englatungur hljóma.
Gloria, hosanna in excelsis.

Allt sem lifir, undur blítt,
í auðmýkt Drottins syngi.
Ótal raddir ómi þýtt
og allar klukkur hringi.
Gloria, hosanna in excelsis.

Héðan látum hljóma dátt,
til himins lofgjörð sanna.
Guð, sem gefur frið og sátt,
nú gistir jörðu manna.
Gloria, hosanna in excelsis.

(Sigurður Pálsson - Lagið er frá 16. öld)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal