ég hafði það ekki í vinnu sökum hausverkjar
kom einhverju öðru í gagn í staðinn
tölvupóstar, ákvarðanataka, las í bók-um og lagaði kaffi
enn bíður lítið sætt skot eftir því að vera málað og puntað
þetta skot hefur litla skottan ákveðið að kalla: skugginn minn
"mamma ég ætla aðeins inn í skuggann minn"
fyrst hélt ég að hún fyndi einhverja óþægilega skugga þarna inni í veggnum
en svo er ekki. það myndast fallegar skuggamyndir á veggjunum í skotinu og þetta er hennar afdrep: skugginn hennar.
sér í lagi fallegt þar sem að hún átti að heita Skuggi þegar hún var elvis í bumbu. er elvis kom út þá var hann/hún með tvær legkökur fastar saman.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal