fékk mér salatdruslu í matinn áðan
en kaffið gaf hins vegar góð stig í daginn
hef verið síblundandi óblæðandi blendingshuga blettagúa
og gærdagurinn er búinn
núna eru það sko bara peningar og pældíðí plott með bleiku mynstri
bráðum verð ég fræg að endemum fyrir þig og mig í faðmlögum
en í dag ríð ég randaflugum með viskustykki og bana geitungum í baðkörum
langar að kaupa ljósið í fríðu frænku
langar að detta í gírinn
þú veist stjörnugíriinn á himnum sem baðar mig úr ljósinu
og lætur bob marley á fóninn því hann er rasta-salí man
vertu ekkert að rífa þig upp fyrir nýbakaðar kleinur elskan
ég skal geyma eitthvað í frystinum
og svo er það barnaafmælið hjá ekki-barninu og ekki-unglingunum
stórkostlegt þetta ekki-barna-bil
komdu nú og kættu mig kona

Ummæli

krumma sagði…
ég er alveg að koma elskan, í öllum skilningi
Fía Fender sagði…
já khooooddddu

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal