mikið óskaplega finnst mér leiðinlegt að vera veik og sér í lagi að vera með óstöðvandi hósta
væl væl væl
er eitthvað svo mókuð
og litla skottan mín skoppast hér um
ég lá í rúminu og hafði mig svo fram úr að reyna að gefa greyinu eitthvað í malla kútinn
en nei
hún var nú búin að redda sér skottan
nú sé ég eftir að hafa ekki tekið mynd af því sem blasti við mér í eldhúsinu
hvítur stóll (hann er yfirleitt grænn)
hvítt gólf (sem er yfirleitt brúnt viðarlitt)
í hvítu mjúku spelthafi gólfsins voru svartir og brúnir kögglar
á víð og dreif
misstórir
jú þetta reyndist vera
a. valhnetukjarnar
b. sveskjur
c. kúkur

"mamma þú verður nú að þrífa gólfið og stólinn. þetta má ekki haaaa!"

og núna er ég búin að þrífa hósta og elda spaghettí og allir sáttir. hóst hóst.
langar í eitthvað hóstadrepandi og súkkulaði og sushi. er algjörlega húkt á sushi um þessar mundir. þetta fer að nálgast fíkn verð ég að segja. hóst.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal