setti skó í poka og skó í kassa alls konar snjáða skó
allt frekar fyrir kvenkyn myndi ég segja
skóför kvenna eru öðruvísi en þau mást jafn fljótt út og skórnir eru jafn snjáðir
þetta voru grænir og bláir og silfraðir og meira segja líka gull
henti þessum hvítu og einum rauðum líka
en ætla að reyna að nota þessa brúnu sem eru orðnir mjög mjög gamlir og skakklappaðir
því ég er skakklöpp
geng ekki heil til skógar
syndi hálf mitt sjósund og sveima í moldinni
henti líka ánamaðknum (þú veist honum ána ormi) og köngulónni og vistarverum þeirra
þau höfðu eignast félaga í bústaðinn sinn og sumir voru svo glaðir að allt iðaði af kátínu
en aðrir voru svo daprir að þeir voru dauðir af drepi og daun og fleira d, dúddúrúddúrú
en svona er nú bara lífið iðandi kátína og drep í á milli
alveg dásamlegt með d

Ummæli

Hel sagði…
ojjjjj!!
Fía Fender sagði…
ddddojjjjj...

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal