sleppa takinu

það er gott að sleppa takinu. svo margt sem er ekki á manns valdi. og svo er erfitt að sleppa takinu á því sem er liðið líka. sleppa takinu á reiðinni. sleppa takinu á tilfinningum af ýmsum toga já. sleppa takinu á úreltum hugmyndum. sleppa takinu á því sem hindrar og hamlar hamingjunni í að flæða inn í lífsorkuna. sleppa takinu á sársaukanum. sleppa takinu af fólki. sleppa takinu á því sem þjónar engum tilgangi í lífi manns í dag. sleppa takinu sem læsir sig fast í líkamanum og veldur vandræðum. andlegum og líkamlegum. faðma breytinguna. trúa því að umbreytingin geti átt sér stað og sé að eiga sér stað hér og nú.

það eina sem breytist ekki er að allt breytist

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal