ég var að borða nammi.
ohhh...ég sem var að hætta öllum sykri og hvítu hveiti. bara búin að vera mamma-spelt þar til kvöld óð ég út í ljótu dýru búðina fyrir slikkið. djöfuls. jæja fokk. best að horfa á sex inspector. dísöss. éta súkkulaði og horfa á kynlífsráðleggingar til hjóna í krísu eftir barnsburð. talandi um hýði. dæs.
----------------

en welll.... stína ó hér :

á heitum degi

krökkt af blindum
gömlum
kvenkanínum
í stólnum

sjúga orðin
sem ég skildi eftir
á þrífætta
borðinu í garðinum

þegar ég nálgast
berfætt
með eyrnahlíf
og loðinn riffil

---------------
og þetta var tileinkað bókmenntafræðingnum roald....segir maður i?

Ummæli

Þór Steinarsson sagði…
Hurðu, það er eitthvað í þessu. Frábært.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal