Fullkomnunarárátta er af hinu illa segir í grein sem ég var að lesa. Ég tek undir þessa fullyrðingu:
"Perfectionism is a mean, frozen form of idealism, while messes are the artist´s true friend."
Það er nú stolið úr mér hver höfundurinn er en það gildir einu. Fullkomnunarárátta hefur ólíkar birtingarmyndir. Þessi týpíski úlfur í sauðagæru. Þykist vera fegurðin sjálf en er ekkert nema illgjörn froðufellandi veira.
Þá hef ég komið þessu á framfæri elskurnar.
Ég er með gigtarverki en bjartsýn sem er fyrir öllu. Kaffið er komið í krúsina og kúlið liggur í mjöðmunum að þessu sinni.
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Nokkur orð frá honum Michael Lutin um múdið í úniversinu og okkur sjálfum þessa dagana:
Finding stability in the midst of a passive sea.
That's the New Moon in Virgo
with Jupiter in Taurus
and Pluto in Capricorn
You get up on your two feet
look around
survey the damage
check your assets
and
go on building for the future
repairing breaks
plugging leaks
making new what was getting old
and putting your shoulder to a
car and lifting it
to free someone trapped beneath it.
It's the return to the diet you cheated on
catching up on everything you
avoided handling.
Sound boring?
Not at all.
This is the restorative moment
that lets you know you are alive
When you're in Virgo mood,
you're in no mood to fool around.
And you don't let other people mess around either.
You're the nun
flicking the lights
at a Catholic school dance,
making sure
couples don't dance too close.
It's not that you can't have fun.
it's just that ...
Jimmy Cliff - You Can Get It If You Really Want
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Nostalgía í brotsjó
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Bókabúðir, bókasöfn og kirkjugarðar eru mínir uppáhaldsstaðir í borgum og bæjum heimsins.(Já svona reyndu að halda andlitinu). Helstu minningar mínar úr æsku eru úr þessu ágæta þríeyki. Sér í lagi er það bókabúðin Iðunn sem staðsett var á horni Öldugötu og Bræðraborgarstígar, Bókasafn Seltjarnarness sem þá var í tónlistarskólanum sem nú telst til heilsugæslunnar, Hólavallakirkjugarður sem hefur til allrar hamingju ekki fengið á sig neina nútíma ásýnd. Að síðustu vil ég nefna kofa úti í Suðurnesi sem telst víst hvorki til bókageymslu né greftrunarstaðar en virðist þó tengjast heimkynnum bóka og dauða á mystískan hátt í gegnum stríð, strandir og sjó með útsýni bæði til Gróttu og Guðs. Reyndar er þessi ágæti kofi orðinn að golfvelli sem passar ekki alveg inn í þessa rómantísku morbid hugmynd um æsku mína sem ég er að reyna að setja hér fram af veikum mætti. Engu að síður eru þessir staðir greyptir í vitund mína (hvað sem sjálfstæðismönnum og gangandi golfíþróttinni líður) og ef ég vakna ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Óskaplega sem það er erfitt að skrifa nokkurn skapaðan hlut hér eða annars staðar. Orðin verða að einhverju gumsi í þreyttu höfðinu sem neitar að taka á sig skapnað, hvorki fallegan né ljótan eða eitthvað annað. Man ekki fleiri lýsingarorð. Orð. Ekki segja neitt. Biddu frekar um hvíta strönd fjarri mannabyggðum. Eða bara skúr í stórborg. Bjúgtöflur og tannkrem.
Áttu gullriste?
Haaa hvað er það?
Ég veit það ekki en örugglega eitthvað rosalega vatnslosandi.
Nú!? (Vá hvað þetta orð "vatnslosandi" getur gert mann brjálaðan)
Nei ég meina þetta er drykkur sem fær gullið í sál og holdi til að rísa.
Neeeeei kannast heldur ekki við það sko en á hérna hins vegar mjög góðar náttúrlegar sápur.
Okei ég fæ þá bara sápu í staðin.
Haltu kjafti hvað kellingin þarf að fá sér bjúgur og uppstúf maður.
Þrátt fyrir allt þá er sólin falleg.
Blessuð sólin já. Og fallegasti dagur ársins var laugardagurinn 6. ágúst. Töfrandi stöff.
Góða nótt.
Júlí
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ásta Sig urðar dóttir fær sér ber brjósta smók og nakið fólk liggur á eilífðarströndinni eins og krabbar í landlegu. Á hálendinu er foss. Þú getur baðað þig í honum. Farðu bara úr öllum fötunum og skelltu þér undir köldu sturtuna. Það sér þig enginn nema Guð og gleraugun. En ég fer hins vegar í bað. Í baðkarinu mínu eru lavenderblöð sem minna mig á hassdrottningu í Kaupmannahöfn. Hún var leikkona með rauðan varalit og átti marga elskhuga. Þegar ég flutti inn í risið hennar á Brigadevej ilmaði rúmið af lavendergrasi og lífi í tuskum. Kötturinn skeit og allt það og jú enn er ég í sætu risi og kötturinn er farinn að skíta úti. Það má þakka fyrir það. Ég ætla að vera í fötunum og þætti gott að komast inn í flugvél og burt af þessari eyju. Ég kyssi stelpurnar á hægri vanga og á vinstri vanga. Hugsa um Guð og Happdrætti Háskólans. Þarf að fá mér hristan Martini : "Læknarnir við háskólann í Ontario fundu út að hristur Martini gagnist betur en hrærður til þess að gera vetnisperoxíða óvirk...