Færslur

Mynd
stundum hefur maður sig ekki í nokkurn skapaðan hlut. gengur bara um í skítugum nærbuxum með maskara niður á píku eins og pjattlaus rófa. bárðarbunga í eldhúsvaskinum og ofan í hárugum matarleifum í ræsinu glittir í draumana sem gleymdust í mókinu í fyrra eða þar áður. veit það ekki. man það ekki. hver var að tala um drauma. dreymdu þig bara upp á nýtt góða og gáðu síðan hvaða húsnúmeri þú býrð í núna. gvuðséþólof að ég heyri að það sé verið að láta renna í bað. konan sem býr í sjálfri mér hlýtur að hafa ákveðið að skipta um húðfrumur og nærbuxur. og hvort það sé slæmt að nenna ekki að fróa sér veit ég ekki einu sinni. zizek hefði örugglega útflúraðar meiningar um það. vængstutt tungan klæmist bara við túnfisk. hér er bara lygnt já og eilítil molla innifyrir en hjá þér. lutin segir að mókið síðan í nóv sé búið bless og. já og kraftaverk en ekki er ég að sensa það get ég bara sagt. reyndar svo seinir nemarnir á þessum árstíma. ætla að reyna að baða mókið út úr sinum. slappaðu af, það ...
djöfull þarf ég að vaska upp..... þoli ekki þessi endalausu húsverk. hvernig var þetta með húsverk og kynþokkafullar konar haaaaa.....dududududud og þessi vetur er að gera út af við fólk. ólíklegasta fólk í vinnunni farið að tala um kanaríeyjar eða annað rugl. ég læt mig reyndar ekki dreyma um sjálfan mig rorrandi í bikiníi en kommmmon þarf þetta að vera alveg svona. eins gott að ég meika að vera einn og einn dag án háu hælanna. það fer ekkert alveg með sexapílið þó svo ég sleppi summsé hælunum þegar mikið liggur við. en í ellinni mun ég taka þetta allt út og rorra bara og sorra baðstrandarleg með munnstykki og púrtara og eldrauðan varalit í háum hælum einhversstaðar þarna í útlandi....þó ekki kanarí.
Mynd
krumminn veit það örugglega best að þessi vetur mun einn daginn taka enda. að svartnætti fæðir af sér ljós á endanum. hann stendur þetta af sér. sveimar um í eirðarleysi sínu leitandi að kroppi og tilvistarkrúnki til að næra tímann. krummi minn vokir yfir og saman fáum við okkur nýpressaðan ananassafa með engiferi. þvílíkt lostæti í drunganum.
og meistari lutin segir um þessa viku: YOUR LIFE IS GOING TO CHANGE THIS WEEK BIG TIME this is a change of season
sit hér heima fyrir framan sjónvarpið með veiku stelpuna mína horfi inn í ráðhúsið og langar að hlaupa niður eftir og taka þátt í mótmælum þar fá útrás fyrir þessa kraumandi reiði en veika stelpan syngur: allt fyrir ástina eina sem aldrei nóg er af mennirnir eeeeelskaaaaaa fórnaaaaa....
tunglsýkin hefur sest að og fært vitið úr hjörtunum og lýðræðið var gatað í sundur með einhverju sem virtist glóa en tunglsýkin já henni er ekki allri lokið og spádómar hennar tærast ekki upp á einni nóttu eins og pólitískt minni marhnúta nei en þrátt fyrir von mína um hitt og von mína um annað von mína um vit í hjörtum þá hefur tunglsýkin einnig komið sér huggulega fyrir í stóra rassinum mínum, jújú og vissulega prumpar hann eftir matreiðsluna í reykjavíkurborg nálægt öndum sem jappla á brauði, en mig langar þó heldur að fljúga rassinum mínum upp úr foraði og leðju og fara burt héðan úr þessari borg sem mér þykir vænt um, úr þessu landi því það liggur fnykur yfir sem ég vona að gúbbígleymist ekki við fagurt aftanblik í febrúar.
sjáiði tunglið maður... ég er farin