Kveðja


  
Ef ég dey,

þá skiljið svaladyrnar opnar.


Barnið borðar appelsínur

(Ég sé til þess ofan af svölunum).


Kornskurðarmaðurinn sker korn á akrinum

(Ég heyri til hans ofan af svölunum).


Ef ég dey,

þá munið að skilja svaladyrnar eftir opnar!


Federico Garcia Lorca (1898-1936) 
Þýðing: Sonja Diego
(Þýðing Sonju birtist í Lesbók Morgunblaðsins 23. desember 1964)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal