Birtan er sú næring sem er hvað mikilvægust. Ég sef betur í allri þessari birtu. Ég vakna betur. Ég er í meira jafnvægi í birtunni. Ég er þakklátari. Öll betri. Birtan er allt sem ég þarf. Reyndar langar mig að kúra svoldið á morgnana þegar klukkan hringir mig til nýs dags upp úr klukkan sjö. En það er eins og það geri bara ekkert til. Sumarsólstöður nú og birtan er eins mikil og hún getur verið. Næturnar eru ekki síst dásamlegar. Bjartar nætur. Uppáhaldið mitt. Í tilefni af birtunni þá ætla ég á tónleika í kvöld í Grasagarðinum. Ljúfa líf.
Bækur á meðan ég hverf
Nú tók ég upp á því að skrásetja eitt og annað frá október 2023 þegar ég setti búslóðina í geymslu og fór á vetrarflakk. Þar á meðal skrásetti ég hvaða bækur ég væri að lesa og/eða hlusta á. Les allt í bland og margar bækur á sama tíma, kláraði þær ekki allar en samt flestar. Mjög lengi með sumar og eins og elding með aðrar, eins og gengur. Ein og ein er ég að lesa aftur, og jafnvel aftur og aftur. Samt frekar sjaldgæft. Er enn að lesa sumar. Þetta færir mér einhverja undarlega ró, yfirsýn, landslag sem fer í gegnum mig. Tek upp kíkinn og sé bátinn færast framhjá og hverfa inn í mistrið. Mér finnst allt vera að hverfa, aðallega ég sjálf. Kassinn með jólaskrautinu er til dæmis horfinn. Jólakúlurnar frá ömmu og afa og nostalgían. Gufaði bara upp í flutningum og ákvað þar með að sinn tími væri liðinn. Með skrásetningar áráttu skil ég eftir mig spor. Lestrarspor. Bý til járnbrautarteina í gegnum tímann á meðan ég skrifa, hverf, skrifa, hverf, les, hverf, les, er horfin til allrar hami...
Ummæli