Head up woman


Andy Kehoe: Protector

Drap tittling og trítlaði mér fram á klósett. Dáðist að litla baðkarinu. Lagaði kaffi. Fékk mér rjúkandi bolla í lavender baði. Sumir kunna nú að leika á þurran þorsta sem hefur reyndar leikið hana mig grátt undan farnar vikur. Það vætlaði örlítið vanillukaffi niður á geirvörtuna og Guð sagði mér að gott væri að mála á sér augun eftir baðferðina. Þetta væri tilvalinn dagur fyrir svarta augnmálningu. Ef ég myndi reykja eitthvað að ráði þá fengi ég mér eina More út um eldhúsgluggann. Röddin að ofan og innan sagði mér líka að fá mér vatn við öllum mögulegum lífsins þorsta. Vökvaðu allt sístemið kona vökvaðu kona. Það sagði Guð vinur minn og meistari.

Svo mæli ég með Andy Kehoe.

Ummæli

Unknown sagði…
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal