þú kemur heim til þín
býður gott kvöld
bergmálið svarar þér kuldalega
lætur sem það hafi ekki heyrt kveðju þína
snýr sér undan
þú kallar aftur
og þitt eigið svar er reyrt um raddböndin
það blæðir lítið eitt úr koki og gómi
læðist lækur niður lendar
sköflung
tær

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal