í kveðjuskini veifaði ég tilgerðarlega þegar ég var nær úr kallfæri
en í rokinu heyrðist frelsisekkó so long so long
long
long
ong

já þá var einn miðillinn frá
skyggnilýsingarnar enda farnar að vísa í gallið hið innra

vald er afstætt
ef enginn heyrir í valdinu verður það þá þar með að engu?
ætli það grasseri í þögninni?
sumt vald er vald því það hefur rödd og annað vald er vald því það sker tungur úr.


það er alla vega að koma helgi og ég ætla bara að setja góðan blús á fóninn og fá mér kirsuberjavín - baka pizzu ef það þykir eftirsóknarvert í hinum innsta hring.

adju
dju
ju
....

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal