Hvar ertu ljóðið mitt?
Jæja... Febrúar hefur verið bíómánuður mikill - og hef ég nú nýlega séð: Skoppu og skrítlu Refurinn og barnið Sólskinsdrengurinn Vicky, Cristina, Barcelona Benjamin Button jú og svo fór ég einu sinni í leikhús: Rústað Held að Woody Allen hafi verið mér mest að skapi af þessari súpu - jamm er í svona stuði þessa dagana, gæti barasta skellt mér í bíó á hverjum degi - beint eftir vinnu, hreiðrað um mig í myrkum sal með sjálfri mér, skáldskapnum á tjaldinu og poppkorninu kannski ég skelli mér á Revolutionary Road eftir vinnu í dag...hmmm hvur veit En það sem af er degi hef ég verið óvenju aktív farið í morgunte á Mokka, í Kramhúsið að horfa á fiðrildi flögra og fengið að flögra aðeins með, borðað slakt salat á Horninu, ráfað um bókabúð, tjekkað á Alfreð Flóka á Listasafninu, rölt um bæinn með góðu fólki og farið í vinnunna... svei mér þá - þetta hljómar barasta eins og heil vika og dagurinn er rétt hálfnaður give me things that don´t get lost syng ég nú bara með honum Neil Young og fletti...
Ummæli