ég bið um syndaaflausn

ég hefi etið súkkulaði og svínakjöt

og mun fara með 25 maríubænir

annars er allt vel vanið og værukært og ljúfa lífið fær að dómínera

litla skottan: mamma mamma mamma jesú reis upp.

mamman: mmmm. ég ætla að hvíla mig aðeins meira.

ls: guð galdraði hann upp til himna þar sem stjörnurnar eru.

m: jaaaá einmitt jájá. jamm guð er pabbi jesú.

ls: Í ALVÖRU - heitir hann þá Jesú Guðsson???

m: jájá guð er pabbi allra.

ls: Í ALVÖRU - og líka afa og ömmu??? (með mikilli undrun í málrómi)

m: jamm - guð er mamma og pabbi allra.

ls: vá þá ætla ég að fara í rauða prinsessukjólinn minn.....

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal