þessi helgi var ágæt
ég var döpur á föstudagskvöldið en hressari á laugardeginum og fór í vinnuna mína
gekk síðan um sólríkan sem og rigningarþrunginn bæinn með vinkonu og nældi mér í tebolla hér og þar
og svo var etið svoldið sushi og gengið meira um og heim á leið í spjall undir tónum og reykelsisilmi
í dag var það stúss með skottunni sinni, farið í messu og búðir og síðan sofið heilósköpin

jamm - gott að vita af stuttri vinnuviku þó svo ég skuldi enn blessaða vinnutíma

ég man ekki lengur eitthvað um þig sem vakti mig af dvala og kveikti losta
man ekki lengur hvar ég hýsti þessa innri leit
finnst raunsæið fallegt á sinn einfalda hátt
við rósa bardagafiskur eigum kannski fleira sameiginlegt en virðist fljótt á litið

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal