ó afsakiði elskurnar. það var lokað fyrir allt bloggfjármagnið og því neyddist ég hreinlega til þess að frysta síðuna. þykir það leitt. veit þetta hefur valdið ykkur ónotum en ég fann upp nýjar flæðandi aðferðir fyrir auð minn og magn. get þó ekki lofað ykkur hversu lengi ég get ausið úr þeirri brandíbelju.

annars er allt gott. ég er nýkomin heim úr yndislegu orlofi úr næsta póstnúmeri. þar var tedrykkju haldið á lofti ásamt fleiri kúrilegheitum nærandi návistar.

kirkjuklukkurnar hringdu vel og lengi rétt áðan. ég held þær séu komnar til að vera.

ég ætla að horfa á silfrið á eftir. en núna er það frekari tedrykkja.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal