enn ligg ég hér vælandi veik. vonlítil að vanda, holdsveik í lífskraftinum mikla. en ég tek mín ólívulauf hvað sem öðru líður og er það því merki um bata, von og miklar væntingar um stórkostlegt framhaldslíf ef ég leyfi mér einhvern tíman að deyja til þess eins að upplifa upprisuna. stóra stelpan mín les um "ismael og átrúnað araba". það hefur sem betur fer einhver breyting orðið á kennslu í trúarbrögðum í grunnskólum frá því að ég var stúlkubarn. ég man það helst að þá var engin trúarbragðafræði heldur einungis kristinfræði. þetta var reyndar ein af mínum uppáhaldsgreinum og gat ég þulið upp jesúískar dæmisögur af mikilli sannfæringu og trúarkrafti enda guðsóttinn alltumlykjandi. já undir niðri var þessi eilífa hræðsla skólans að börnin myndu afvegaleiðast frá kristinni trú. en mér þykir þó ósköp vænt um mína mjög svo sterku barnatrú. þakkir fyrir hvern fagran morgun, þakkir fyrir hvern nýtan dag, þakkir að ég hef endurgoldið og elsku veitt í mót.......er jesú kom til jeríkó hann jafnskjótt fór af stað og hló því krist hann gæti kannski séð ef klifi hann móberjatréð ef .....
Bækur á meðan ég hverf
Nú tók ég upp á því að skrásetja eitt og annað frá október 2023 þegar ég setti búslóðina í geymslu og fór á vetrarflakk. Þar á meðal skrásetti ég hvaða bækur ég væri að lesa og/eða hlusta á. Les allt í bland og margar bækur á sama tíma, kláraði þær ekki allar en samt flestar. Mjög lengi með sumar og eins og elding með aðrar, eins og gengur. Ein og ein er ég að lesa aftur, og jafnvel aftur og aftur. Samt frekar sjaldgæft. Er enn að lesa sumar. Þetta færir mér einhverja undarlega ró, yfirsýn, landslag sem fer í gegnum mig. Tek upp kíkinn og sé bátinn færast framhjá og hverfa inn í mistrið. Mér finnst allt vera að hverfa, aðallega ég sjálf. Kassinn með jólaskrautinu er til dæmis horfinn. Jólakúlurnar frá ömmu og afa og nostalgían. Gufaði bara upp í flutningum og ákvað þar með að sinn tími væri liðinn. Með skrásetningar áráttu skil ég eftir mig spor. Lestrarspor. Bý til járnbrautarteina í gegnum tímann á meðan ég skrifa, hverf, skrifa, hverf, les, hverf, les, er horfin til allrar hami...
Ummæli