heimadagur með skottunum í dag. okkur langar ekkert út í þetta veður. horfum bara á blautan þvottinn blotna meira og fjúka um eins og argir fuglar fastir í sínu eigin ímyndaða hári. eða eitthvað. vorum að baka fínustu speltlummur. þetta var étið upp í einum grænum. ætli ég komi mér ekki af stað í jóga seinni partinn. annars er þessi dagur eitthvað svo mikið hversdags að hann fer í hring og verður abnormal bara. öll erum við stórskrítnar skrúfur. og já.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal