það er nú eins og að bíða eftir eigin dauða að vinna á þennan tölvugarm.
ég vaknaði í morgun með hausinn fullan af blýi og með blátt blóð í æðum. eða eitthvað. vítamín og kaffi. undarleg blanda. hlusta á madonnu með yndisfríðu dóttur minni. nýjasta sportið þeirra er að brenna diska. skiptast á brennslum blessuð börnin. blíðum í blænum. jæja. eitthvað er ég nú stúrin í dag. kem engu í verk. þoli þetta ekki. skrifa um myndlist. skrifa um shiller. skrifa um tjöld. lesa lúsablóð. blætisbæta bæinn. b fyrir bælingu. b fyrir bólfélaga. b fyrir bændur. b fyrir búkonur. b fyrir barnsrass. b fyrir blóðrautt blek. b í baksturinn. bæbæ.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal