sannlega er mín sorgin stinn neinei er bara að raula þetta lag. sest á heilabörkinn minn og nartar sig í gegn sút fló í brjóstið inn kaffi og bakkelsi og mogginn að morgni er nú ekki svo galið og ég fór snemma að sofa. já. því svefn er hið besta fegrunarmeðal og ég hugsa eingöngu um vítmínbætta fegurð og les minn plótínus á meðan ég plægi akurlendi innri veiðilendna sykurinn hefur sogið sig inn í annað heilahvelið og snarkar þar um þreytir mig og ég þræti fyrir allt hvítt myrkur syng bara um lóu og spóa og heyri í kanínum steppa leikhús eða bíó bíó eða leikhús víbrador eða typpi typpi eða víbrador bara píku lenín eða stalín jeltsin nei hann er dauður skál sníp eða eyrnasnepil auga nei þau eru lokuð sand hland eða land sjó nei sjórinn fór í frí þar fór það
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Best að nota þennan bloggræfil sem auglýsingatöflu: Málþing meistaranema í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands föstudaginn 27. apríl klukkan 13.30 – 17.00 í stofu 101 í Odda Dagskrá: Kl. 13.30 – 15.00 Fyrri málstofa Guðrún Hulda Pálsdóttir: Kynning á ársriti Torfhildar Davíð Kjartan Gestsson: „Illgjarna tungan í svartholinu: Greining á Cahier d’un retour au paysnatal eftir Aimé Césaire. Guðrún Dröfn Whitehead: „Hirðfífl hans hátignar.“ Soffía Bjarnadóttir: „Síbreytilegt hold tímans: Líkami, dauði og list.“ Kl. 15.00 Kaffihlé Kl. 15.30 – 17.00 Síðari málstofa Símon Hjaltason: „George Orwell: Saga, sannleikur og sósíalismi.“ Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir: „Kynjahlutverk sólar og mána.“ Helgi Sigurbjörnsson: „Brýt höfuð, tengi brot við brot.“ Um Brotahöfuð eftir Þórarin Eldjárn. Veitingar og spjall ALLIR VELKOMNIR!