Og já svo ég haldi áfram dagbókar skrásetningu að þá fór ég í gær á Draumalandið í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Til að byrja með að þá gengur maður inn í mjög skemmtilegt rými og er þessi leikmynd með þeim betri sem ég hef séð lengi. Hún er blanda af náttúru og ónáttúru. Fantasíu og veruleika. Sýningin mynti mig ótrúlega mikið á margar sýningar Leiksmiðju Reykjavíkur. Það var bæði mjög skemmtilegt en einnig óþægilegt á stundum. Rýmið átti sinn þátt í því, sem og leikarahópurinn og fötin sem þau voru í. Já ég þekkti element úr "Frá kyrrstöðu til hagvaxtar" sem var sýning sýnd í litlu rými í þá Frú Emilíu leikhúsi, en nú Loftkastalanum. Allur textinn var úr Morgunblaðinu einn sunnudag í mars 1994. Jafnframt var eitthvað sem ég þekkti úr Streymi, sem var sýning á vegum fleiri aðila á vegum Listahátíðar í Hafnarfirði, sett upp í Straumi sumarið 1993. Þar var álíka endir þar sem opnuð var stór skemmuhurð út í frelsið og leikararnir hverfa þangað út. En þetta þótt mér bara nokkuð skemm...
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Í gær fór ég á fyrirlesturinn: Can art still be subversive? - ásamt öðrum bæjarins bestu. Já hvernig ætti maður að útleggja það, getur listin enn rifið niður, eða stuðað, haft áhrif, breytt....Held að það sé inntakið. Spurningin um það hvað listin færi okkur og hvert hún ferji manneskjuna innan þunns lags veruleika og drauma. Hverjir eru þessir möguleikar. Ég hafði reglulega gaman af þessari tölu hans Slavoj Zizek. Satt að segja bjóst ég ekkert frekar við því að ná tengingu þarna en fannst hann verulega inspírerandi og skemmtilegur á að hlýða. Tafsandi skýr, klórandi sér í hugsunum og húð. Trúlaus Marxiskur Lacanisti. En hann velti fyrir sér sálgreiningu í dag og telur hana ekki dauða, búna, bless. Ó nei. Hann hlýtur að hafa eytt ævi sinni í togstreitu guðleysis og máttar guðs. En hann sagði sig trúleysingja. Talaði um guð handan við sjálfan guð. (Samt er alltaf svo óþægilegt að halda sjálfi og guði saman. Væri gott að geta aðskilið sjálf, kyn, guð. Allt þetta þrennt.) Það er kraftur í...