Sjálfsmynd Sjö fingur á kistuloki tennur grafnar á afviknum stað fuglsvængir negldir á liðamót ég tel augnhár mín í herberginu sem þú fæddist í ekki hefna þín Sjón: Reiðhjól blinda mannsins . Medúsa, Reykjvík 1982.
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
og vá hvað hún er góð myndin. brokeback mountain. ég féll í stafi. þessir guttar leika óviðjafnanlega. ennis del mar og jack twist verða hluti af sálarlífi áhorfandans. falleg og grimm ástin. við erum kindahjörð og látum smala okkur saman upp á fjall og niður af fjalli. öll þessi fjöll full af fortíðinni og hefðum hennar. svo er reynt að temja ástina. þessa bölvuðu ótemju. ríða henni inn í framtíðina. eftir nóttina var búið að éta sig inn í kindarlíkamann. allt þetta mjúka og harða sem tegst á og sameinast og sundrast. þetta mjúka og harða. innra og ytra. minn vilji. þinn vilji. þeirra. einstaklingurinn og samfélagið. ég verð að sjá þessa mynd aftur. helst strax.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
það heyrist mjög hátt í tölvunni minni. surgandi flugvél sem kemst ekki á loft. ég hef verið að hugsa um að kaupa lappa. svona þar sem ég er að byrja að vinna í meistararitgerðinni. væri það ekki málið haaa? eða á ég kannski frekar að taka bílpróf. fartölva eða bílpróf? hmmm.... en ég er líka að hlusta á malið í silfur aglinum ásamt tölvusurginu. ætla að setja muddy waters á: i just want to make love to you - love to you. hann setur heillandi ljúfa stemmningu á hann muddy. ég þarf að taka til. fjall af þvotti frá okkur pæjunum. hreinum og óhreinum. fjall í eldhúsvaskinum. fjall í hausnum á mér sem byrgir mér sýn í hversdagsamstrinu. fjall í brjóstinu sem segir tifar. öll þessi fjöll. gaf vini mínu ljóðabók einu sinni sem heitir: svona er að eiga fjall að vini. hmmm...eða eitthvað svoleiðis. núna er árni bergmann að tala um nýlega bók sína um bækur og lestur og viðtökur. að vera lesandi. túlkandi. skoðandi. leitandi....eða ég held að það sé það sem hann er að fara. fróðleikur í skáldska...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
uppköst já. merkilegt með þau. líkaminn er að hafna einhverju ástandi. ég kastaði upp alla síðustu nótt. aftur og aftur og aftur. núna líður mér betur. Úr Oh eftir Sjón: Oh; nei þegar ég gekk út úr húsinu dimmdi og ég var á torgi og það rökkvaði hratt og torgið var umkringt litlum hermannatjöldum sem opnuðust ég hafði verið þarna áður nei og út úr þeim komu risavaxnar hendur tvær úr hverju hægri og í annarri var hnífur en í hinni var saltstaukur þá fór ég inn nei þær komu alveg upp að mér og hægri hendurnar skáru höfuðin af hinum og þær börðu vænjunum í saltið nei Oh; og í dag innbyrði ég: vatn treo kók fingers kartöflu sallat ávexti ís ég borgaði um 350 krónur í 10/11 ég lá mikið í rúminu mínu með magaverk og hausverk. en ég fór líka í skólann að horfa á mynd um karl annan tippaling. ég fór í matarboð. það var gott.