Talaði við öskuna í morgun og fann limina bærast í duftinu. Það hringlaði í hlekkjum um úlnlið og sköflung. Úr loftinu hékk órói úr gulum lyklum og í næstu íbúð var verið að hlusta á Aerosmith.

Askan hefur hvíslandi rödd og selur mér sælu fyrir blóðdropa. Einn dropi á dag - syngur hún til mín sínar hvíslandi serenöður. Einn dropi á dag...

Andy Kehoe: Songs of the Dead

Ummæli

krumma sagði…
er þetta gestapóstur frá fólkinu við hliðina á þér, nei bara af því þú varst dottin í areosmith þarna um daginn, lovu babe-sing with me
Fía Fender sagði…
dream on dream on

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal