Konan hefur ákveðið að taka gleði sína á ný þrátt fyrir að kunna ekki að sjarmera manneskjur nema með fúkyrðum. Hún hefur ákveðið að gefa skít í allt nema ástina og vináttuna og guð og skella sér bara í sumarfrí. Kaupa sér kjól og kampavín og eiga dásamlegar vikur framundan. Hún mun skafa af sér volæði og velling og æða á tónleika og í plokkunartrans stúta öllum streitubaugum heims síns og la di da útskrifast og hitta alla sem hún elskar svo mikið. Hún er þegar farin að iða í öllu sínu fagra skinni við tilhuxhuxhuxunina....

Ron Hamad: Here, 2011

Ummæli

krumma sagði…
yndislegi ruddinn minn, the beautiful nightmare
Fía Fender sagði…
hahaha já segðu darling

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal