faðmaðu ljósastaura
gangstéttarhellur
sem og aðrar hellulagnir
malbikaða gangstíga
og hjólastíga
líka bílastíga ef þú vilt
grá hús
já faðmaðu þau líka í rigningu
sér í lagi þau sandblásnu
fyrir alla muni
sleiktu laufin
ánamaðkana
grasið blauta
já sleiktu það bara
og fingurna á þér í leiðinni
sér í lagi ef þeir eru skítugir
fyrir alla muni
faðmaðu og sleiktu eins og þú gætir
endalaust
úr þér blómum
blætt

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Madrigal